Þankabanki Ágústu
12.11.2006 13:15:20 / agustryg

Hætt að blogga!

Heil og sæl!

Hér er formleg tilkynning um það að ég er hætt að blogga, sem þið hafið örugglega tekið eftir fyrir LÖNGU síðan. Líf mitt gengur sinn vanagang sem þið vinir mínir ættu nú örugglega að vita allt um og óþarfi að flagga því á veraldarvefnum.

Yfir og út

Ágústa:D


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.09.2006 18:28:29 / agustryg

Strákar eiga að fá annan séns!!!

Varð að skella þessum bréfi hingað, vona að þið fyrirgefið mér grófleikan á því.:-)

Kæra Sunna

Ég veit að hjónabandsráðgjafinn sagði að við ættum ekki að hafa
nein samskipti á kælitímabilinu, en ég gat ekki beðið með það lengur.
Daginn sem þú fórst frá mér, þá sór ég þess eið að tala aldrei við þig aftur.
En það var bara særði litli dregurinn í mér sem fékk mig til að hugsa
svona. Samt, ég vildi ekki vera sá sem væri fyrri til að hafa samband.

Draumurinn minn var sá að þú kæmir skríðandi aftur til mín. Stolt
mitt þarfnaðist þess. En nú sé ég að stolt mitt hefur kostað mig mikið.
Ég er þreyttur á að þykjast ekki sakna þín. Mér er sama hversu illa það
lítur út fyrir mig. Mér er sama hvort okkar byrjar fyrst, svo lengi sem annað okkar
gerir það. Kannski er kominn tími til að tjá hvort öðru það sem býr
okkur í brjósti eins hátt og það er sárt. Og hér er það sem mér býr í
brjósti......

Það er engin eins og þú Sunna. Ég leita að þér í augum og barmi
hverrar konu sem ég sé, en þær eru ekki þú. Ekki einu sinni líkar þér. Fyrir tveim
vikum hitti ég stúlku á Glaumbar og tók hana með mér heim. Ég er
ekki að segja þetta til að særa þig, bara til að sýna þér hversu
örvinglaður ég er. Hún var ung, kannski nítján ára, með einn af þessum fullkomnum
líkömum sem bara ungdómur og þrotlausar æfingar í skautadansi færa manni. Ég
meina, bara fullkominn líkami. Ótrúleg brjóst og rass sem er harður sem
skjaldbökuskel. Hvers manns draumur ekki satt. En á meðan ég sat í sófanum meðan
þessi gyðja tottaði mig, hugsaði ég, sjáðu allt þetta sem við gerðum
mikilvægt í lífi okkar.

Það er allt svo yfirborðskennt. Fyrir hvað stendur fullkominn líkami. Gerir
það hana betri í rúminu? Jæja í þessu tilfelli, já. En skilurðu hvað ég er
að fara. Gerir það hana að betri manneskju? Hefur hún betri hjartalag en
hin meðal aðlaðandi Sunna? Ég efa það. Og ég hafði aldrei hugsað útí það
áður. Ég veit það ekki, ætli ég sé ekki að þroskast aðeins.

Síðar þegar ég var búinn að losa í hana bollafylli af klofrjóma, stóð ég
mig að því að hugsa ?hví finnst me´r ég svo tómur og búinn?? Það var ekki
bara vegna gallalausrar tækni hennar eða vegna druslulegs blygðurnarlauss
hungurs hennar, heldur eitthvað annað. Einhver skrambans missir sem ég
fann. Hversvegna var þessi ófullkomleika tilfinning? Þá allt í einu skildi ég.

Tilfinningin var ekki sú sama því þú varst ekki þarna, Sunna, til að horfa. Skilurðu hvað ég er að meina? Ekkert er eins án þín. Jesús Sunna, ég er að verða geðveikur án þín. Allt sem ég geri minnir mig á þig.

Mannstu eftir Kollu, einhleyp móðir sem við kynntumst í Grafavoginum í fyrra? Jæja hún kíkti við í síðustu viku með fat af lasagna. Hún sagðist telja að ég væri ekki að borða vel með engan kvenmann hjá mér. Ég skildi ekki hvað hún væri að meina fyrr en síðar um kvöldið, en það var ekki það sem ég vildi segja frá. Hvað um það, við fengum okkur nokkur vínglös og fyrr en varði vorum við á fullu að dúndra í gamla svefnherberginu okkar. Og þessi kvensa er algjört skrímsli í bólinu. Hún gerir allt, þú
veist, eins og kona sem er ekki upptekin af því hvort hún sé of þung, hvort börnin heyri í okkur eða áhyggjur af framanum. Allt í einu sér hún snyrtispegilinn á skattholinu hennar ömmu þinnar. Hún setur hann á gólfið og við komum okkur fyrir við hann. Þú veist, til að við getum horft á okkur. Ognþað var mjög kynæsandi, en gerir mig líka daprann. Því ég kemst ekki hjá því að hugsa afhverju datt Sunnu ekki í hug að setja spegilinn á gólfið?? Við erum búin að eiga þennan grip í fjórtán ár, og við höfum aldrei notað hann sem kynlífsleikfang.

Laugardaginn síðastliðinn, kom systir þín með eintak af nálgunarbanninu. Ég
meina Vigdís er krakki og allt, en hún er frekar skynsöm og hefur verið mér
góður vinur á þessum erfiðum tímum.

Hún hefur gefið mér góð ráð um þig, og um konur almennt. Hún stendur með
okkur og styður okkur í að taka saman aftur. Sunna, hún gerir það virkilega. Við vorum að drekka í heitu baði og tala saman um gleðilegri tíma. Þarna var þessi táningsstúlka með sömu gen og þú og það eina sem ég get hugsað um er hve lík þú varst henni þegar þú varst átján ára. Og hve mikið það fær mig til að langa til að gráta.

Svo kemur í ljós að Vigga er mikið fyrir analríðingar, sem fær mig til að
hugsa hve oft ég var að ýta á þig að prufa þetta með mér og hvað
það hefur ýtt undir biturleika milli okkar. Sérðu hvernig jafnvel þá, meðan
ég er að hræra í kanilkari litlu systur þinnar, þá er það eina sem ég husa
um ert þú? Það er satt Sunna. Þú veist það í hjarta þínu. Heldurðu að við
getum reynt aftur? Bara þurrka út allann ágreininginn og byrjað uppá nýtt? Ég
held við getum það.

Ef þú heldur að við getum þetta, gerðu, gerðu, gerðu það, láttu mig vita.
Ef ekki, viltu segja mér hvar sjónvarpsfjarstýringin er??

Jón


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.09.2006 15:25:06 / agustryg

frettir af utan

hallo!

Best ad lata vita af mer. Eg hef lokid keppni i traut og endadi i 5. saeti. Vann allar stelpurnar sem voru med svipadan arangur og eg og tad var fint! Hins vegar var tetta leleg traut i alla stadi. I gaer rigndi allan lidlangan daginn, ekkert udi nei,nei tetta var sko urhelli allan daginn!!! keppnin ridladist oll til og arangur var ekki godur hja neinum. aragnur hja mer er eftirfarandi..  15,97-1,57-10,77-27,44-5,03-31,0?-2,31? . Mun enda i +- 4300 stigum:(  Su sem vann er polsk og er med 5. besta heimsarangur tetta arid Carolina eitthvad heitir hun og a rumlega 6400 stig. Einnig var ein bresk ad keppa sem a yfir 6000 stig og endadi hun onnur.

Annars er tetta buid ad vera mjog skemmtilegt og vel tekid a moti okkur. Erum a agaetis hoteli her i baenum (Hexham), erum sem sagt rett fyrir utan Newcastle. Hef adeins getad verslad en a morgun tarf madur ekki ad spara sig fyrir neitt tanig ad kannski getur madur tekid meira a tvi ta.

Bid ad heilsa

'Agusta


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.07.2006 21:54:27 / agustryg

Sumarfrí!

hæ, hó!

Ég nenni ekki að blogga í sumar. Hafið þið það gott og verið dugleg að njóta þess!!!:-)

Kveðja

Ágústa


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.06.2006 12:34:41 / agustryg

loksins, loksins!!!!

hæ og hó!!

Loksins báru allar æfingarnar árangur, eftir öll þessi ár. Ég er að fara til Spánar fyrstu helgina í júlí fyrir Íslands hönd á Evrópubikarkeppni í þraut:lol: Jibbí, jei!! Nú er bara að æfa stíft fram að því til að toppa árangur síðustu helgi enn meir, enda á ég mun meira inni en heildarstigin sögðu til um.

Þangað til síðar bið ég að heilsa!!

chao

Ágústa


» 16 hafa sagt sína skoðun

19.05.2006 10:56:37 / agustryg

Nenni þessu ekki lengur!

Hæ, hó!

Er búin með 2 ár á Laugarvatni, ein einkunn komin í hús og var hún bara ágæt. Átti að minnsta kosti von á verri. Hin sex fögin láta víst eitthvað bíða eftir sér.

Þessa vikuna hef ég bara verið að bora í nefið. Var alltaf að bíða eftir svari um vinnu hér í Reykjavík en þegar ég hringdi nú í fyrradag og ekkert ennþá komið úr því ákvað ég að hætta þessari vitleysu og skella mér bara í sveitasæluna á Selfossi og verð að vinna þar næstu þrjár vikur, eða þar til leikjanámskeiðið hefst í júní. Manni finnst maður alltaf vera að tapa peningum ef maður fer ekki að vinna strax eftir að prófum lýkur og því er ég búin að vera alveg á tánum hérna í Rvík alla þessa viku.

Reyndar er nóg af mótum þessa vikuna. Svolítið sérstakt í gær en ég var skráð í tvær greinar á móti á Laugardalsvelli en endaði svo með því að ég fæ engan árangur skráðan á mig þar. Fyrst var 200 metra hlaup og gekk það mjög vel. Alveg við mitt besta eða þá bæting, nema það að tímatakan mistókst:(  Svo var það hástökk en það átti að byrja klukkan 19:00 og klukkan 19:20 var engin starfsmaður mættur á svæðið og 19:30 var hástökkið ekki enn hafið. Ég taldi út atrennuna og tók æfingastökk en  var engan veginn að fíla mig og ákvað því á síðustu stundu að afskrá mig í þessa grein þrátt fyrir að það væri alveg að hefjast. Maður var orðinn hálf kaldur.

En já, hún Ágústa verður á Selfossi næstu vikur!!!  Ég er ekki svo ósátt því þá get ég brugðið mig á bak, skoðað lömbin og svo videre!!!:lol:

See you!

» 3 hafa sagt sína skoðun

10.05.2006 22:15:18 / agustryg

alveg að verða búin!

Heil og sæl!

Já, nú er þessari önn óðum að ljúka. Klára tvö síðustu prófin á morgun. Fimleikar bóklegt og verklegt. Er búin að vera í handahlaupi og kollhnísum allan liðlangan daginn frá því á mánudaginn:D

Ég var að eignast afkvæmi í dag! Nei, ég er ekki með óléttusjúkdóminn heldur var hún Nös mín að bera. Eignaðist tvo gullfallega hrúta:D Annar fær titilinn lambakóngur því hann fæddist fystur af öllum hrútum. Einhver annar í fjölskyldunni fær að eiga lamdadrottninguna. Ég ætla sko að fara að skoða lömbin mín á morgun. Já, á morgun getur maður sko tjillað feitt!!:lol:

See you!


» 8 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 22:56:33 / agustryg

ný færsla!

heil og sæl!

Verð nú að endurnýja færsluna enda orðin vel öldruð (færslan sko, ekki ég!)

Nú er bara allt brjálað í verkefnavinnu og maður situr við frá morgni til kvölds. Þessu fer þó senn að ljúka en ekki tekur betra við, próflestur!!!

Fyrir þá sem eru bæði andlega og líkamlega þreyttir á próftímanum mæli ég með að hreyfa sig. Þótt maður vilji nú helst ekki vera að eyða orkunni í svoleiðis vesen og einnig að þreytan sé svo mikil að ykkur finnst þið ómögulega getað hreyft leggi og liði, þá skal ég sko aldeilis segja ykkur að þið komið endurhlaðin til baka. Orkan mun meiri en hún var fyrir leikfimina. Þetta sannreyndi ég áðan og það virkaði!:D

Já, aðeins 3 dagar í að ég færist einu ári nær þrítugu, þetta er skelfilegt:( En reyndar er maður jafngamall og maður vill vera gamall svo þetta ætti að sleppa:lol:

Bless og ekkert prófstress!!


» 16 hafa sagt sína skoðun

13.04.2006 19:54:08 / agustryg

Gleðilega páska!

Heil og sæl!

Nú líður senn að páskum. Var að vinna í fermingarveislu í allan dag, fór í tvær veislu síðasta sunnudag og um næstu helgi fermist Ingvi bróðir þannig að það er nóg að snúast í fermingum.

Sumarvinnan er að verða klár. Er hætt við póstinn og ætla að stjórna leikjanámskeiði hjá ÍR í júní og júlí. Mjög spennandi en í staðinn vantar mig vinnu hálfan maí og allan ágúst. Svo ef þið vitið um eitthvað megið þið endilega láta mig vita. Birgir er líka kominn með frábæra vinnu í Rvík. Verður að vinna hjá þjónustuveri Símans og getur unnið eins mikið og hann vill og fær góð laun:D

Ég er komin í páskafrí, já fæ fjögurra daga æfingafrí. Er að pæla í að liggja upp í sófa það sem eftir er að páskunum (og jú, kannski læra aðeins á milli), a.m.k. hreyfa mig sem minnst. Annnars er hestamannakaffi í Þingborg á laugardaginn og ætla Túttur að fjölmenna þangað þannig að hver veit nema maður skelli sér í smá reiðtúr.

Gleðilega páska:-)


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 13:56:03 / agustryg

Aprílfréttir

Fyrsta færslan hjá mér í þessum frábæra mánuði. Síðan síðast hefur margt á daga mína drifið.

Fór í danspróf þann 1. apríl og gekk það ljómandi vel miðað við aldur og fyrri störf. Þann sama dag átti faðir minn afmæli og vil ég bera honum kveðju mína núna:lol: Þann dag skellti ég mér einnig á Jet Black Joe ball í hvíta húsinu á Selfossi. Fyrst var ofur partý hjá honum Svenna og þar var bara skemmtilegt fólk. Hólafarar mættu á svæðið og prófuðu að djamma á Selfossi.

Komst svo loksins heim til mín í gær eftir 2 vikna útlegð á Laugarvatni og var það ósköp ljúft. Ekkert að Vatninu en alltaf gott að komast heim.

Nú eru bara tveir skóladagar eftir fram að páskum. Í heimsókn eru hjá okkur (sem erum í tómstundarfræði) krakkar í 7. bekk í Áslandsskóla í hálfgerðum skólabúðum og fer morgundagurinn allur í ýma skemmtilega afþreyingu með þeim.

Nú í dag og á næstu dögum streymir frjálsíþróttfólkið út í sólina í æfingabúðir en ég og nokkrir aðrir verðum hér heima á hinu fallega Fróni með honum Kuldabolta. Hvort mynduð þið eiginlega velja, sólina eða Kuldabola? Mér er sko alveg sama um hitann og sólböðin og þess háttar!!;) Annars verður brjálaður heimalærdómur yfir páskana og því eins gott að maður standi sig vel í honum fyrst maður fór ekki út.

Chao!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

31.03.2006 14:57:08 / agustryg

Mataræði!!

Sæl!

Það hefur stundum komið fyrir mig að fá svona sérstakt æði á ákveðnum mat, yfir ákveðið tímabil. Man eftir hrökkbrauðstímabilinu, þessu örþunna sem er yndislegt bara með smjöri (í bláum pakkningum), borðaði það í tonnatali eitt sumarið. Svo var það tekex með rifsberjasultu, matarkexæði og lengi má telja.

Nú er ég komin með nýtt æði. Ég hugsa um þetta fæði þegar ég fer að sofa á kvöldin og hlakka til þess að borða það í morgunmat, eftir morgunmat hugsa ég gott til glóðarinnar til að borða það í hádegismat og ef ég nenni ekki að elda á kvöldin þá er það allt í lagi, því ég á..................................................súrmjólk með morgunkorni:lol::P

Annars er það Jet black Joe ball í hvíta húsinu á laugardag og liggja leiðir flestra þangað!!!! Ekki vit í neinu öðru. Verður geggjað gaman!!Vei, vei, vei8)

Verð að drífa mig á æfingu svo ég geti nýtt restina af deginum í æfingu fyrir danspróf!!

Ágústa


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.03.2006 22:34:26 / agustryg

fréttir af Vatninu!

* Búin að bæta við tveimur nýjum íþróttum í reynslubankann minn, sundknattleik og sundballett

*Helgin með swingerum á Vatninu var snilldin ein.

*Er búin að borða sama pastaréttinn þrjá daga í röð svo mikið var eldað á laugardagskvöldið og skammtur til fyrir alla vikuna í viðbót:-)

*Öll verkefni að hellast yfir

*Danspróf á laugardaginn

*Hálfgerður stormur var á Vatninu í dag

*Enn styttist í páskafrí:lol:

Yfir og út


» 7 hafa sagt sína skoðun

22.03.2006 11:27:10 / agustryg

kominn með vinnu!

Hæ og hó! Ég var farin að hafa smá áhyggjur yfir að finna mér sumarvinnu í Rvík því maður fær ekki vinnu nema að sækja um (sem ég var ekki farin að gera):-/ Hringdi svo eitt símtal í póstinn og fékk vinnunna á staðnum þar sem ég er vön. Jibbíjei, nú veit ég ekkert hvort ég eigi að vesenast í því að sækja um á fleiri stöðum þar sem ég veit hvað pósturinn er hentugur fyrir frjálsarnar. Launin er skítléleg enda ekki von þar sem vinnutíminn er frekar stuttur.

Ég ákvað að beila á íþróttadegi og grímuballi í skólanum:-/ Mig hálflangar að fara en nenni ekki að keyra í Vatnið sérstaklega fyrir það því ég er í tíma í Rvík á morgun. Í staðinnn get ég tekið æfingar í bænum og útréttað hitt og þetta. Ég var sko tilbúin með búninginn en vonandi næ ég að nota hann á næsta ári! Ég hef nú svo sem verið dugleg að mæta á skipulagðar samkomur á Vatninu og staðið mig betur í því heldur en margir aðrir! Nú styttist óðum í heimsókn swingerana og verður helgin pottþétt meiriháttar á Vatninu:-)

Jæja, best að fara að gera eitthvað

Ágústa


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.03.2006 16:45:51 / agustryg

Ég komst í feita gullnámu!!!

Um helgina skrapp ég á Selfoss til að fara í afmælið hjá Elínu í Oddgeirshólum.

Ég og Halla byrjuðum á því að skoða litlu prinsessuna hennar Agnesar, hún er bara sæt!:lol:

Skellti mér svo til ömmu til að skoða í skóskápinn hennar. Er búin að ætla mér að gera það í mörg ár og því miður gerði ég það ekki fyrr. Mín tók 14 skópör  í poka sem hefðu hvort sem er átt að fara til Rauða Krossins. Já, ég endurtek 14 pör!!!!!!! Allt úrvalsskvísuskór og þar sem ég er nú engin skófrík þá mun það breytast á næstunni enda nóg úrval að velja um. Þetta voru skór allavegana á litinn og líka misfínir. Sko, bara geggjaðir. :!: Þeir sem nota skó númer 39 geta jafnvel fengið að blikka mig og fengið lánaða skó við einhver tækifæri.

Skvísan hún Elín var 25 ára og var margt um manninn í afmælinu. Mikill söngur og strokaka sem smakkaðist vel. Ég, Halla og Hrafnhildur skelltum okkur svo í 
Pakkarann, ár og öld síðan síðast og kíktum á stemminguna. Hann var troðfullur af fólki.

Svo bauð gellan hún Sigurbjörg okkur Birgi í Bláa Lónið á sunnudagskveldið. Það var bara nice og ekki smá flott. Fossinn virkar vel til að losa um stífar axlir, mæli með honum. Ég var náttúrulega við sama heygarðshornið og rak miðtánna harkalega í eitthvern stein í botninum og nú er hún illa blá og marinn. Hálf vont að ganga:S

Læt þetta nægja í bili

Ágústa


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.03.2006 12:32:38 / agustryg

Helga stóðst áskorunina!!!

Heil og sæl!

Nú er ég í þessum skrifuðum orðum stödd í Stakkahlíðinni. Verð þar í tíma til þrjú í dag. Þessa vikuna er ég á flakki milli Reykjavíkur og Laugarvatns og get því æft að hluta til í Rvík. Fullt af verkefnum er að hlaðast á okkur í hinum og þessum fögum og nú er kominn tími til að setja allt í botn og hætta þessari helv.... leti. Já, nú gengur þetta ekki lengur!!!

Verð nú að minnnast á hetjuna hana Helgu Ýr, ég sagði svona á gamni við hana hvort hún nennti ekki að koma með mér á hlaupaæfingu á laugardagsmorgninum. Þetta er æfing sem ég er sjálf stressuð fyrir að mæta á og bjóst nú ekki við að hún þorði að prófa. Viti menn, hún mætti á staðinn og stóð sig eins og hetja á æfingunni:D  Ég vil gefa henni eitt stórt klapp:lol:     Við reyndar afrekuðum það að týna hlaupahópnum og vorum eins og villtar kanínur að hlaupa út um allt í Öskjuhlíðinni en það var bara gaman eftir á því við fundum hópinn að lokum og náðum að taka sprettina.

Elín í Oddgeirshólum er að halda upp á stórafmæli um helgina og ætli maður skelli sér ekki suður í það. Alltaf gaman í sveitinni!:lol:  Annars er helgin algjörlega óráðin.  Það styttist óðum í Laugarvatnsheimsókn swingershópsins og hlakka ég geggjað til. Fyrst mætir maður þó á grímuballið í skólanum sem verður á miðvikudagskvöldið og sprellar þar. Grímubúningurinn er í fullri vinnslu.

Jæja, jeg má slut nu!

Ágústa


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10